Velkomin á vefinn Snjalltækni í leikskólastarfi

Hér er að finna upplýsingar um þróunarverkefni sem unnið var í leikskólanum Krógabóli á Akureyri frá 2014-2018. Verkefnið hófst haustið 2014 með endurskoðun á málræktarstarfi og vinnu við nýjar námskrár. Haustið 2015 innleiddum við fyrstu spjaldtölvurnar og hófum vinnu við að þróa leiðir til að nýta þær á skapandi hátt til að vinna með málið. Á þessari vefsíðu má lesa nánar um verkefnið, fræðast um þau smáforrit sem við höfum verið að nota og skoða sýnishorn af því sem við höfum verið að gera með börnunum.