Puppet Pals HD - sögugerð

Frábært app í skapandi vinnu og málrækt.

Puppet Pals er sniðugt forrit sem hægt er að nota til að leika sér með málið, búa til sögur og leikrit. Sögumaðurinn velur persónur úr myndasafni appsins eða býr þær til sjálfur og tekur af þeim myndir. Einnig er hægt að velja, eða búa til, bakgrunna. Að því búnu dregur sögumaðurinn persónurnar inn á leiksviðið og segir frá. Mjög einfalt í notkun.

Með því að fjárfesta í Director´s Cut inni í appinu bætist við möguleikinn á að búa sjálfur til bakgrunna og persónur. Þetta gefur appinu nýja vídd og eykur möguleikana mikið. Með Director´s Cut er hægt er að taka ljósmyndir beint úr appinu eða nota myndir úr myndasafni spjaldtölvunnar til að búa til nýjar persónur og leikmuni. Börnin geta t.d. tekið myndir af sjálfum sér, vinum sínum, foreldrum eða kennurum og notað í sögurnar. Einnig geta þau teiknað eða föndrað persónur og bakgrunna. Hægt er að nota myndir úr myndasafni spjaldtölvunnar eða sækja myndir á netið (t.d. fótboltamönnum, teiknimyndapersónum eða ofurhetjum) og bæta inn í sögurnar.

Í Puppet Pals HD er hægt að geyma sögurnar og skoða seinna í appinu eða vista þær niður í Camera Roll en þaðan er svo hægt að deila myndbandinu áfram.

Í Puppet Pals er unnið með orðaforða, framsögn, endursögn og málvitund. Einnig læra börnin hugtök tengd sögugerð og læra að byggja upp sögur.


Söguborð

Hægt er að vinna á margvíslegan hátt með appið. Þegar börnin eru búin að læra hvernig það virkar og farin að prófa sig áfram er sniðugt að þróa vinnuna lengra og búa til söguborð með þeim. Söguborðið virkar þannig að börnin teikna upp söguna gróflega, ákveða hvað á að gerast og hvaða bakgrunnur og persónur eiga að vera til staðar í hverri senu.

Í hverri sögu er hægt að nota fimm bakgrunna og átta myndir sem geta verið persónur eða einhverskonar leikmunir. Því er mikilvægt að skipuleggja sig vel, sérstaklega þegar börnin eru að endursegja lengri sögur og ævintýri. 

Eins og alltaf er gaman að fá að horfa á það sem maður hefur búið til og jafnvel sýna öðrum. Það er skemmtilegt að bjóða deildinni, hópnum, bekknum, foreldrum eða öðrum að koma í bíó þegar búið er að fullvinna verkið.


Maja maríuhæna

Hér má sjá myndband sem börnin á Krógabóli gerðu um Maju maríuhænu í Puppet Pals HD. Þau röðuðu saman bakgrunninum sjálf og fundu alla leikmuni sem þurfti til þess að segja söguna á bak við sönglagið.

 


Gilitrutt

Hér er dæmi um verkefni þar sem allur bakgrunnur sögunnar, persónur og leikmunir voru teiknaðir af börnunum. Það þarf að skipuleggja sig vel þegar maður hefur bara fimm bakgrunna og átta persónur/hluti til að segja sögu, í þessu verkefni gerðu börnin því söguborð þar sem þau ákváðu í samráði við kennarann sinn hvað átti að gerast í hverju atriði. 

 


Hvernig er hægt að nota Puppet Pals HD í leikskólanum?


Ævintýri, barnabækur, vísur, þulur og sönglög
Á Krógabóli höfum við unnið mikið með Puppet Pals út frá barnabókum, sönglögum og þjóðsögum. Þetta hefur verið mjög skemmtileg vinna. Börnin hafa bæði búið til eigin sögur og endursagt sögurnar sem við erum að vinna með. Stundum verður til skemmtileg blanda af þessu tvennu. Mikil vinna liggur á bak við hvert myndband, þar sem börnin hafa hannað og búið til allt frá grunni. Oft notum við efnivið á borð við einingakubba til að búa til bakgrunna eða málum myndir. Persónur og leikmunir hafa verið búnir til úr alls kyns efniviði, bæði í tví- og þrívídd. Frábær leið til að vinna með málið og þá sérstaklega skilning, framsögn, ritun, miðlun og orðaforða á skapandi hátt.   

Þemaverkefni
Puppet Pals er flott til að nota með hvers kyns þemaverkefnum. Börnin geta búið til persónur og hluti sem tengjast þemanu eða tekið myndir og klippt út og gert sögur og frásagnir út frá því.

Skáldsögur
Hægt að búa til nýjar sögur og ævintýri úr frá eigin brjósti. Gaman er að leyfa börnunum að teikna og skapa persónur í leik og borðvinnu og gefa svo tíma í að mynda þær og setja inn í Ipadinn. Þannig verður til myndasafn með persónum barnanna sem þau geta notað til að búa til alls kyns sögur og ævintýri. 

Fræðslumyndband
Hægt er að búa til fræðslumyndbönd, þar sem persónurnar segja ákveðna sögu eða koma einhverju á framfæri, það væri t.d. hægt að gera í tannverndarviku, í tengslum við uppákomur og tyllidaga o.s.frv. 

Félagshæfnisögur
Sögur sem kenna hvernig á að gera eitthvað eða takast á við ákveðnar aðstæður. 

Kennarar
Kennarar geta búið til efni sem tengist því sem þeir eru að gera, t.d. sett þulur eða sönglög upp á myndrænan hátt. Búið til stafrænar loðtöflusögur eða stutt myndbönd til að kenna reglur eða annað á skemmtilegan hátt.

Tækifæriskort, boðskort o.þ.h.
Kort til foreldra eða frá leikskólanum. Boðskort, jólakort, afmæliskort o.þ.h.


Puppet Pals á vefnum


Kennsluvefur

Á vef Fjólu má finna allt sem til þarf til að læra á Puppet Pals og nota það í starfi með börnum, kennslumyndbönd, kennsluáætlun og hugmyndir um hvernig hægt er að nota smáforritið, allt á íslensku. Á Youtube er einnig hægt að finna fjölmörg myndbönd sem gerð eru í Puppet Pals, bæði kennslumyndbönd og eins myndbönd sem búin hafa verið til í smáforritinu.


Hvers vegna að nota Puppet Pals í leikskólastarfi?

Puppet Pals er frábært forrit til að nota í málörvun og skapandi vinnu með öllum aldurshópum. Hægt að vinna með orðaforða, framsögn, skilning, sögugerð, sköpun og fínhreyfingar svo eitthvað sé nefnt. Auðvelt að tengja við myndlistar- og tónlistarverkefni. Flott í hvers kyns þemaverkefnum og sérkennslu. 


Við mælum með þessu forriti í alla skóla. 

©Krógaból, 2017